Fjármál Umhverfisstofnunar árið 2020

Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri fyrir árið 2020 námu heildargjöld Umhverfisstofnunar 2.157,3 m.kr. og heildartekjur 599,9 m.kr. Framlag ríkissjóðs nam 1.558,1 m.kr. og því skilar stofnunin 0,7 m.kr. í afgang það ár. Fjárveitingar Umhverfisstofnunar skiptast í þrjá hluta, þ.e. almennan rekstur, endurgreiðslur til sveitarfélaga vegna veiða á ref og mink og framkvæmdir í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli og á fjölmörgum friðlýstum svæðum víðs vegar um landið. Gerð er nánari grein fyrir hverjum og einum þessara hluta hér að neðan.

Almennur rekstur

Framlag ríkisins til almenns reksturs Umhverfisstofnunar árið 2020 nam 1.507 m.kr. en það var 1.489 m.kr. árið 2019.

Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri ársins 2020 námu gjöld við almennan rekstur Umhverfisstofnunar 2.106,1 m.kr. Til samanburðar má geta þess að þau námu 1.936 m.kr. árið 2019. Meðfylgjandi mynd sýnir hvernig gjöld vegna almenns reksturs skiptust milli fagteyma stofnunarinnar árið 2020.


Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri 2020 námu tekjur af almennum rekstri Umhverfisstofnunar 599,9 m.kr. það ár. Meðfylgjandi mynd sýnir skiptingu helstu tekjuliða árið 2020.

Endurgreiðslur til sveitarfélaga

Umhverfis- og auðlindaráðherra ákveður árlega taxta fyrir laun minkaveiðimanna en sveitarfélög greiða þeim fyrir veiðarnar. Sveitarfélögin senda Umhverfisstofnun skýrslu um veiðarnar ásamt reikningum sem stofnunin endurgreiðir í samræmi við taxta ráðherra. Úthlutun til sveitarfélaga vegna refaveiða er í samræmi við þriggja ára áætlun þar að lútandi. Árið 2020 námu endurgreiðslur til sveitarfélaga vegna refaveiða 27,7 m.kr. og vegna minkaveiða 23,5 m.kr.

Meðfylgjandi mynd sýnir endurgreiðslur til sveitarfélaga fyrir ref og mink árin 2016 til 2020 í m.kr.

Framkvæmdir í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli og á öðrum friðlýstum svæðum

Umhverfisstofnun annast framkvæmdir í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli og á fjölmörgum friðlýstum svæðum víðs vegar um landið. Markmiðið með þeim er að bæta innviði fyrir ferðamenn og verja náttúru landsins gegn ágangi. Meðfylgjandi tafla sýnir hvernig fjármagn til framkvæmda skiptist milli landshluta árin 2016 til 2020. Árið 2020 voru mestu framkvæmdirnar við Gullfoss og Geysi, Friðland að Fjallabaki, Dyrhólaey, Skógafoss og í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli.

Í m.kr.

2016

2017

2018

2019

2020

Norðurland eystra

48,5

8,1

6,1

0,8

9,8

Vestfirðir - norður og Norðurland vestra

0,8

1,9

0,1

0,9

4,1

Vestfirðir - suður

11,9

29,1

106,1

31,6

16,7

Vesturland

91,2

38,0

102,8

130,4

131,9

Höfuðborgarsvæðið

 

 

1,8

0,2

0,0

Suðurland og miðhálendið

109,9

165,2

67,5

101,8

409,6

Austurland

3,7

1,5

0

1,7

3,0

Verkefni sem nýtast landinu öllu

6,1

1,2

0,1

0

0,5

Samtals272,1245,0284,5267,4575,6